Fullt nafn: Helgi Snær Agnarsson
Gælunafn: Helgi hálftími
Aldur: Tvítugur
Hjúskaparstaða: einhleypur
Vinna/skóli: Eina sem ég vinn þessa dagana eru Warzone leikir
Eftirminnilegur leikur með Magna: Magni-Völsungur í Kjarnafæðis, skoraði tvö mörk í sama leiknum, það mun líklegast seint endurtaka sig.
Uppáhalds drykkur: Panodil hot
Uppáhalds matsölustaður: Fiskbarinn, Ágúst Valves kokkurinn þar, fjúff, sá kann að elda ofan í mann.
Hvernig bíl áttu: Ég á gulllitaðan Yaris, sama árgerð og ég, Gullna Eldingin
Hver er lélagastur í reit: Tómas Veigar slappastur í reit, einn klaufakall sem finnst ekki leiðinlegt að láta klobba sig
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: GOT (GOAT)
Hvaða lag kemur þér í gírinn fyrir leik? Show goes on (Lupe Fiasco)
Átrúnaðargoð í æsku: Ronaldinho
Hvað mælir þú með að gera heima á meðan samkomubannið stendur yfir? Bið fólk vinsamlegast um að gera eitthvað gagnlegt, lesa bækur, læra tungumál, tefla eða spila tölvuleiki :)
Fyndnasti liðsfélaginn: Ég hlæ mest að Tómasi Arnars, hann hlýtur þá að teljast fyndnastur
Besti samherji: Tómas Veigar bestur, alveg æðislegur og yndislegur sá gæi (tomasveigar á insta)
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur mætt: Kolbeinn Finns
Ef þú gætir séð einhvern fótboltaleik úr fortíðinni aftur núna í fyrsta sinn. Hvaða leikur væri það: Champa League Final 2008 United-Chelsea, bara til í að sjá Terry renna aftur
Sætasti sigurinn: 2-3 sigur með Vængjunum á KF á Ólafsfirði síðasta sumar, header á 95’ to seal the deal. Bikarúrslit með Fjölni í 2.flokki fá líka shout, góð tilfinning að loka dollu.
Mestu vonbrigðin: Uppalinn í Stjörnunni, við töpuðum úrslitaleik Íslandsmótsins í 6.flokki gegn Fylki. Kolbeinn Finns á móti KIK (Kristóferi Inga Kristinssyni). Fylkisstrákarnir negldu minn mann alltaf niður þegar hann fékk boltann, mátti náttúrulega ekki gefa gul spjöld í 6.flokki. Forkastanleg vinnubrögð hjá Fylkismönnum en þetta hefur alltaf setið í mér.
Hvaða liðsfélagi eyðir mestum tíma fyrir framan spegilinn: Ég sjálfur örugglega að laga möllann
Uppáhalds lið í enska: M.United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég tæki líklegast the original Luigi, Aron Loga Sigurpálsson úr KFB, rafmagnaður í klefanum.
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Ronaldinho
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Í 2.fl Fjölnis fékk ég krampa í fyrri hálfleik og þurfti að ljúka leik. Þetta var fyrsti leikurinn eftir útskriftarferðina mína.
Besta bíómyndin: Treasure planet
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Ég tæki Nökkva Má Nökkvson (ÍBV) (vanur að búa á eyju). Gauta Gauta (Magni) til að veiða til matar og passa upp á okkur og Jóhann Árna (Fjölnir) til að assista mig við flekasmíð. Fjölbreytt og margslungið teymi, þessi eyðieyja ætti ekki séns.
Hvaða lið vinnur 1. deildina í ár: Eyjapeyjarnir taka þessa deild þó þeir fái vænan skell í fyrstu umferð.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Íslandsmeistari í Futsal
Athugasemdir